Klæmst á kláminu.

Nú er allt upp í loft því að klámhundar (og tíkur) ætla að funda í Reykjavík. Sennilega er brýn þörf fyrir að halda neyðarfund innan klámiðnaðarins þar sem klám er orðið svo hversdagslegur þáttur í athyglis-, markaðs- og söluformi listsköpunar og túlkun hennar, að klámiðnaðurinn er með auknum hraða að tapa forskoti sínu og markaðshlutdeild fyrir klámvæðingu rit-, mynd- og leiksnilldar nútímans. Klámiðnaðurinn eins og allur annar iðnaður nærist á neyslu ákveðinna markhópa og því að bjóða fram sem fjölbreytilegast vöruúrval. Fram að þessu hefur fjölbreytileiki vöruúrvalsins verið sóttur í æ yngri aldurshópa (barnaklám) og þannig tekist að halda stórum hluta markhópsins við áframhaldandi neyslu og að breikka hann jafnvel nokkuð inn í enn þrengri afkima pervertismans þar sem þó nokkur fjöldi af sálum hírist. Hins vegar er það líffræðilegum takmörkunum háð hversu langt má teygja vöruúrvalið niður eftir aldurslistanum þannig að ekki er loku fyrir það skotið að vöruúrvalið verði breikkað í hina áttina svo að tekjumöguleikar stútungskellinga (og kalla) á ellilífeyrisaldri geti vænkast til muna ef klámiðnaðurinn skyldi sjá sóknarfæri í að markaðssetja þá vöru sem “supersex” framtíðarinnar.

Það er allavega ljóst að það verða mörg mikilvæg mál til umræðu á viðskiptaþingi klámhundanna á Íslandi í mars n.k. Klámiðnaðurinn er jú órjúfanlega tengdur alþjóðlegri mafíustarfsemi ásamt eiturlyfjasmygli og sölu, mansali og vændi þar sem gífurlegur hagnaður myndast innan s.k. neðanjarðarhagkerfis. Þetta neðanjarðarhagkerfi væri dautt ef það fynndi sér ekki farveg upp á yfirborðið í hið almenna hagkerfi þjóðanna. Því má ætla að hrikta myndi í hinu opinbera hagkerfi margra landa ef gróðinn af þessari atvinnustarfsemi, sem og annari mafíustarfsemi, og ávöxtun þess fjár, ætti ekki greiða leið inn í yfirborðshagkerfið með tilheyrandi hagvexti. Að framansögðu má því spyrja hvort Íslendingar ættu ekki að vera hreyknir af því að einn angi alþjóðlegrar mafíustarfsemi, klámiðnaðurinn, sem hagvöxtur velmegandi þjóða m.a. fleytir sér á, skuli velja okkar harðbýla land til að halda sitt viðskiptaþing. Allavega hafa heyrst háværar raddir um að æskilegt væri að á Íslandi verði ein af viðskiptamiðstöðvum heimsins þannig að samkoma klámhundanna getur orðið fyrsti vísir þess ef við tökum vel á móti þeim. Trúlega er það þessvegna sem málsmetandi menn innan stjórnmálanna virðast vera þeirrar skoðunar að óhægara verði um vik að stemma stigu við samkomu klámunda og tíka en friðsamra mótmælenda Kínverskra mannréttindabrota og náttúruspjalla þar sem í síðarnefndu tilvikunum er um klárleg lögbrot að ræða, en ekki í klámi. 

Þótt klámhundarnir noti tækifærið og fái samhliða afnot af fjölum leikhúsanna til að skvera upp einni eða tveim klámsýningum, eða studioum sjónvarpsstöðvanna  til framleiðslu á einni eða tveim svæsnum klámmyndum ætti það ekki að raska ró okkar miðað við það framboð af klámi sem þar tíðkast fyrir.  Guðjón Petersen


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gauji Pet

Höfundur

Guðjón Petersen
Guðjón Petersen
Fyrrverandi háseti á Gullfossi, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, framkvæmdasjóri Almannavarna ríkisins, bæjarstjóri í Snæfellsbæ og framkvæmdastjóri Félags Íslenskra Skipstjórnarmanna. Núna bara ævintýramaður á eftirlaunum ásamt frú LILJU BEN með áhuga á svo til öllu. 
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...006_1240384
  • ...ngu_1240383
  • ...gullfoss
  • ...hulli
  • Skipstjóraborðið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband