Rifjað upp úr fortíð: Logið að 00X

Skymaster

Þegar umræða myndast um ákveðin mál rifjast ýmislegt upp í huga mans svo að stundum ætla ég að koma með innskot óháð ferðasögunni Um sjó og sund með Lilju Ben. Þessi innskot ætla ég að hafa skáletruð. 

Við vorum komnir í um 10.000 feta hæð yfir uppsveitum Borgarfjarðar þegar ég varð var við að svört leðja jubbaðist út úr mótor 3, sem var innri mótor hægra megin á vélinni. Var olían byrjuð að renna utan á “cowlingunnu” aftur á vænginn. Ég var siglngafræðingur á TF-SIF, Skymasterflugvél Landhelgisgæslunnar, á 7. áratugnum, og við vorum á ferðinni til Akureyrar með Iskoff sjávarútvegsráðherra Sovétríkjanna, sem hér var í opinberri heimsókn, ásamt fríðu föruneyti íslenskra ráðherra og embættismanna, íslenskra og sovéska. Í þeim hópi var íslenskur 00X, sem átti að fylgjast með öllu sem gæti ógnað öryggi hópsins. Staðsetning mín var við kortaborð og siglingatæki hægra megin í vélinni, aftan við flugstjórnarklefann þannig að ég þurfti ekki annað en að líta út til að horfa beint inn í mótorana hægra megin. Þegar ég varð var við olíulekann fór ég í “interphoninn” og sagði flugmönnunum og flugvélstjóranum frá því sem ég sá og stóð flugvélstjórinn þá upp, gekk til mín og leit út um gluggann og sagði, “og hver andkotinn”. Tók hann síðan upp kíki, sem ég var með á kortaborðinu, og fór að kíkja framaní mótorinn til að reyna að sjá hvar olíulekinn var. Þar sem það var alveg opið fyrir farþegana að sjá hvað við aðhófumst létum við líta svo út að við værum bara að tala eitthvað saman, en flugvélstjórinn sagði við mig. “Fylgstu vel með þessu fyrir mig og láttu mig vita ef olíutaumurinn nær aftur að þessu” og skýrði út hvert. “Þá verð ég að drepa á honum áður en kviknar í, en ég ætla að reyna að láta hann lafa til Akureyrar svo enginn verði var við neitt”. Hafði ég nú gott auga með mótornum, en allt í einu stóð 00X upp úr sæti sínu, gekk til mín og sagði. “Er ekki allt í lagi hjá ykkur”? “Jú jú” sagði ég ”hér er allt í fína lagi”. “Jæja” sagði hann þá og virtist ekki sannfærður,“ mér fannst eins og það væri eitthavð ekki í lagi”. Yppti ég bara öxlum og brosti til hans og gekk hann þá í rólegheitunum aftur í sæti sitt, en leit þó tvisvar við og horfði rannsakandi á mig áður en hann settist. Enginn annar virtist taka eftir neinu, ekki einu sinni sovésku lífverðirnir. Við vorum byrjaðir að lækka flugið inn til Akureyrar og svo tók aðflugið við og alltaf gekk mótorinn, en allt var í járnum með það. Strax og lendingarbrunið var búið var drepið á innri mótorunum báðum og sagðist flugstjórinn ætla að renna vélinni þannig upp að flugstöðinni að vinstri hliðin snéri að þegar við söðvuðum svo að hægri mótorinn sneri frá og sæist ekki. Allt gekk þetta eftir og fóru gestirnir frá borði og í sína opinberu skoðunarferð. Voru nú höfð snör handtök að gera við olíuleiðsluna og þrífa mótorinn og mæddi það á flugvélstjóranum með aðstoð flugvirkja frá Flugfélagi Íslands. Fórum við svo í loftið með gestina seinna um daginn. Var farið með þá í skoðunarflug með norður-ströndinni áður en haldið var til Reykjavíkur,  og mikið fjör um borð. Eitt veit ég þó fyrir víst að 00X vissi alla tíð að ég var að ljúga að honum þegar hann spurði mig um hvort ekki væri allt í lagi, en erfði það aldrei þótt við þekktumst vel um árabil.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gauji Pet

Höfundur

Guðjón Petersen
Guðjón Petersen
Fyrrverandi háseti á Gullfossi, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, framkvæmdasjóri Almannavarna ríkisins, bæjarstjóri í Snæfellsbæ og framkvæmdastjóri Félags Íslenskra Skipstjórnarmanna. Núna bara ævintýramaður á eftirlaunum ásamt frú LILJU BEN með áhuga á svo til öllu. 
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...006_1240384
  • ...ngu_1240383
  • ...gullfoss
  • ...hulli
  • Skipstjóraborðið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband