19.10.2006 | 23:50
Stutt, skemmtilegt og óvænt, KR-ingar hér og Gay Pride á Erasmus
Maritime Hotel, óvænt sjón
Það fór vel um alla um borð um nóttina og var nú svefnsófinn uppi notaður í fyrsta skiptið, en þar átti Ólafur Ágúst að sofa. Eitthvað átti hann bágt með að sofna þarna uppi og gekk það ekki fyrr en pabbinn fór upp til hans líka og sváfu þeir feðgar vel þar. Um kl.1030 voru landfestar leystar og áætluðum við að fara um tveggja tíma ferð í Yachthöfn, vestast í Rotterdam. Var Lárus búinn að segja okkur að Guðjón Pet. jr., sem var í fótboltaferð með KR ingum, eins og áður sagði, gisti á Maritime Hótelinu í Rotterdam og var ég engu nær um hvar það væri í borginni, en meiningin var að hitta hópinn. Var nú siglt norður kanalinn, inn á Nieuwe Maas og stefnan tekin vestur úr til móts við stórborgina. Byrjuðum við fljótt á því að þjálfa Lárus í stjóntökum bátsins og var mikil blessun að fá mann um borð til að skiptast á við stjórnina. Framundan risu nú háhýsi borgarinnar og fór að bera á stærri skipum og ferjum eftir því sem við nálguðumst miðbæinn. Var siglt undir Van Brienenoord-brúna sem er 330 m. löng en 24.6 m. eru undir brúna. Þá kom nýja Willemsbrúin og lokst sást framundan sjálf Erasmusbrúin sem tengir miðborg Rotterdam við Erasmus háskólaþorpið á suður bakka Nieuwe Maas. Það eru margir sem hrífast af Golden Gate brúnni í San Fransisco og er ég einn af þeim en þessi brú er trúlega ein af þeim fallegustu í heimi. Hún er einstaklega stílhrein og býr yfir svo miklum einfaldleika í þó mikilfengleika sínum. Er hún af heimamönnum kölluð Svanurinn því hún þykir minna á hann. Suðurflöt brúarinnar má opna (lyfta upp) og er hún stæsta lyftibrú í heimi. Brúin var vígð 6. september 1996 og kostaði fullbúin 165 milljónir Evra.
Þegar við komum undir brúnna segir Lárus allt í einu, hei sjáið, þarna er þá Maritime Hótelið á bakkanum. Þarna blasti það við þannig að við þurftum ekki að leita frekar, nú vissum við að við þyrftum aðeins að fra upp að norður enda Erasmusbrúar til að hitta fótboltastrákana. En nú gerðust hlutir hratt, rétt u.þ.b. sem við vorum komin framhjá hótelinu segir Lárus aftur og þarna er lítil yachthöfn inn til stjb. Var nú snarlega slegið af og snúið upp fljótið aftur og stefnan tekin á mynni hafnarinnar sem opnaðist inn í bæjartorg með sjóminjasafn Rotterdamborgar á hægri hönd. Þegar við komum inn í höfnina renndum við að lausri bryggju neðan undir torginu og við vorum lögst við hliðina á hótelinu þar sem KR- ingarnir gistu, kl. ekki nema 1030. Held ég að krakkarnir hafi verið spæld yfir að fá ekki lengri siglingu þennan fyrsta dag um borð, en við gátum ekki fundið betri stað til að leggjast á, í hjarta borgarinnar og við hliðina á þar sem strákarnir voru. Eftir að við vorum búin að ganga frá fastaverkum komudags var ákveðið að finna út hvar strákarnir voru að spila og horfa á gæjana bursta Hollendingana. Um hádegið byrjaði að þykkna upp og leit út fyrir rigningu í eftirmiðdaginn en við létum það ekki á okkur fá en bjuggumst til landgöngu. Vorum við bín að frétta hvar þeir væru að spila og einnig að framundan væri nokkurs konar Gay Pride Parade, sem þeir reyndar kölluðu þarna Dancing Parade þannig að erfitt gæti verið að komast um borgina. Við lögðum samt í það og verður sagt frekar frá því ferðalagi í næsta pistli.
Um bloggið
Gauji Pet
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.