Stundum smár en stundum of stór.

Þröng á þingi

Þegar komið er svona neðarlega í Rín kvíslast hún í raun í margar kvíslar sem heita mismunandi nöfnum, sem svo kvíslast enn frekar undir aftur öðrum nöfnum, en nóg með það, við vorum nú á kvísl sem heitir Waal. Við drifum okkur á fætur kl. 0630 morguninn 10. ágúst þar sem við lágum undir steinveggnum við torgið í Nijmegen og kl. 0730 leystum við landfestar og fórum. Við ætluðum ekki að láta hanka okkur ef við værum á bannsvæði. Var nú haldið áfram niður Waal og var umferðin á fljótinu snöggtum minni svona snemma dags, en þyngdist að sama skapi eftir því sem leið á daginn. Um kl. 1200 komum við að bænum Gorinchem og renndum inn í litla yachthöfn til að taka olíu. Var okkur bent á að fara aðeins lengra og yfir á hinn bakkann en þar væri Yachthaven Gorinchen en þar væri olíuna að fá. Héldum við samkvæmt leiðbeiningunni yfir fljótið og komum að höfninni, fórum inn og lögðumst að bryggju til að kanna hvar olíubryggjan væri, en hún var ekki sjáanleg innan um mikinn snekkjufjölda í þessar stóru höfn. En nú lá við að við fengjum minnimáttarkennd. Á öllum þeim 23 stöðum sem við vorum búin að koma til á þessari næstum 1000 sjóm. siglingu höfðum við alltaf verið á bát í stærri kanntinum af þeim sem gistu hafnirnar, en nú þurftum við að aulast til að leggjast við bryggju þar sem eingöngu voru stórsnekkjur. Fannst okkur nú m/y Lilja Ben svo agnar smá í samanburði við glæsiskipin sem við vorum komin innanum. Vel gekk að fá olíu afgreidda og var haldið rakleiðis út aftur og ferðinni haldið áfram vestur Bowen-Merwede sem þessi kvísl heitir sem nú var siglt eftir. Lærðum við frú Lilja hér að til að forðast þessa minnimáttarkennd megum við ekki leggjast við ystu bryggjurnar sem við komum að þegar við komum í ókunna höfn, því þar liggja yfirleitt stóru snekkjurnar, heldur verðum við að fara innar í þann stærðarflokk sem við tilheyrum svo að eitthvað haldist nú eftir af stoltinu í okkur. En áfram með ferðalagið. Eftir um 5 km. siglingu kvíslaðist fljótið enn og héldum við áfram eftir Bowen-Merwede, en nú urðu mikil þáttaskil, við vorum komin í svo kallað “tidal water” þ.e.a.s. við vorum komin niður í sjávarhæð þótt enn væri langt til strandar. Nú færi að gæta flóðs og fjöru í fljótinu, ekki þó með hæðarbreytingu sem neinu nemur heldur þannig að straumskipti eiga sér stað fjórum sinnum á sólahring. Í fyrstu stendur mótstraumurinn á niðurleiðinni mjög stutt, innan við eina klukkustund, en eftir því sem neðar dregur eykst sá tími sólahringsins sem straumurinn getur verið á móti og jafnframt fer að gæta hæðarmunar.  Um kl. 1400 komum við að Papedrecht, fallegum bæ norðan við fljótið, en öndvert var svo borgin Dordrecht sem við áttum eftir að heimsækja seinna í túrnum. Þarna kvíslast fljótið enn og lá okkur leið til norðurs en þar áttum við að koma að Yachthöfninni Papendrecht þar sem við ætluðum að leggjast og bíða barna á barnabarns sem voru að koma í heimsókn. En nú fór allt í flækju. Samkvæmt siglingaforritinu og GPS mælingum áttum við að vera komin að höfninni og sá ég nú á bb. sund inn í landið með miklum trjágróðri á báðar hendur og lágu nokkrar skútur þar fyrir utan og umferð af bátum út og inn. Tókum við nú stefnuna inn í sundið en á móti okkur kom harður mótstraumur. Þegar inn var komið var ekkert að sjá nema skipasmíðastöð og legtur sem biðu þjónustu þar. Snerum við nú víð og þvældumst þarna nokkra stund fram og aftur um fljótsmótin til að finna höfnina þangað til ég sá að hún átti að vera aðeins norðar. Hafði sundið sem við fórum inn í skömmu áður afvegaleitt mig því það lá í átt að höfninni einnig, en náði ekki alla leið. Þetta kemur ekki nógu skýrt fram í siglingaforritinu. Stefndum við nú á umferðarbrú sem liggur yfir fljótið en höfnin er við einn enda hennar og kom hún nú í ljós. Var nú stefnan sett á hafnarmynnið. Heldur var umhverfið óhrjálegt, ljótar verksmiðjubyggingar á vinstri hönd og skógi vaxin brekka á þá hægri en fyrir innan u.þ.b. 100 m. langt sund sáust bátar liggja við bryggjur vinstra megin. Inn var farið og fór nú að fara um mig þegar inn í sundið var komið. Grynnkaði óðum undir bátnum og sýndist mér ólíklegt að hægt væri að snúa við, svo þröngt var orðið, en inn skriðum við. Þegar búið var að fara löturhægt framhjá nokkrum bátum sem lágu við bryggjur fannst okkur nóg um og ákváðum að snúa við. Var ég löngu búinn að lyfta skrúfunum upp fyrir kjöldýpt en nú var svo þröngt um okkur að þótt ég sneri bátnum, að mér fannst alveg með sefnið að næstu bryggju, fannst mér skrúfurnar ætla að rekast í kantinn á móti Þegar við erum að vandræðast þarna kemur maður hlaupandi til og býður okkur að taka spotta svo það verður úr og við leggjumst við bryggjuna. Spyr hann okkur á hvaða ferð við séum og segi ég honum það en hann verður heldur betur forviða og segir “og ætluðuð þið að leggjast hér”. Já segi ég samkvæmt siglingaforritinu sem við erum með er þetta gefin upp sem Yachthöfn Papendrecht” “Já segir hann þá, en þetta er engin yachthöfn, hér eru aðeins geymdir bátar fyrir menn sem eru að gera upp gamla báta og ég er einn af þeim”. “Ég var nú búinn að ákveða mig að snúa við” sagði ég þá “en leist ekkert á það í þrengslunum”. “Nei ég er ekkart hissa á því “sagði hann”, ég efast satt að segja um að það sé hægt að snúa svona stórum bát við hérna”. Okkur féll allur ketill í eld. Fyrr um daginn vorum við smá innan um stóru glæsisnekkjurnar, nú vorum við svo stór að allar bjargir voru bannaðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gauji Pet

Höfundur

Guðjón Petersen
Guðjón Petersen
Fyrrverandi háseti á Gullfossi, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, framkvæmdasjóri Almannavarna ríkisins, bæjarstjóri í Snæfellsbæ og framkvæmdastjóri Félags Íslenskra Skipstjórnarmanna. Núna bara ævintýramaður á eftirlaunum ásamt frú LILJU BEN með áhuga á svo til öllu. 
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...006_1240384
  • ...ngu_1240383
  • ...gullfoss
  • ...hulli
  • Skipstjóraborðið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband