Olfen, taler du dansk og %u201Ctrixið við slússurnar.

Miðnálin sem sett er fast á í slússum

Við lögðumst við bryggju í Olfen kl. 1650, eftir 6 klst. og 30 mín. siglingu. Varð tíminn lengri en vegalengdin gefur til kynna vegna olíutöku og slússuhasars sem ég sagði frá í pistlinum hér fyrir framan. Þegar við vorum búin að leggjast, beint fyrir framan hafnarskrifstofuna, kom að hinu klassiska verki að tala við “Hafna” og ganga frá legunni. Enginn var við en yachtari (bátamaður) sem ég hitti á bryggjunni sagði að von væri á honum kl. 1800. Spurði ég þá manninn í hvaða átt við ættum að ganga til að komast í matvörubúð til innkaupa og hvort hann vissi hvað væri lengi opið. “Til kl. sex” var svarið “en þið labbið ekki þangað, það eru minnst 10 km. til næsta þorps með matarbúðum”. “Get ég ekki bara hringt á bíl?” spurði ég en maðurinn leit þá á mig með móðgunarsvip og sagði “ég keyri ykkur bara sjálfur í stórmarkaðinn”, við yachtarar erum jú félagar. “Ég þarf aðeins að skreppa um borð fyrst” sagði hann, “en kem eftir smá stund og þá förum við”. Rétt er að geta þess að hann talaði svo til enga ensku og ég enga þýsku svo samtalið var í sjálfu sér miklu bögglaðra en hér er lýst. Nú við frú Lilja gerðum okkur nú klár til landgöngu og skömmu síðar kom maðurinn til að keyra okkur í bæinn sem var mjög gott því að auk þess hvað langt var í bæinn þá hefðum við átt í vandræðum með að komast inn í höfnina aftur því hún var harðlæst og við ekki búin að fá lykil eða aðgangskoda að hliðinu þar sem Hafni var ekki kominn til að ganga frá legunni. Á leiðinni var spjallað saman með þeim ráðum í tungutaki og látbragði sem mönnum er áskapað þegar ólík tungumál og brot úr þeim eru notuð. Þegar við svo komum í bæinn ók okkar ágæti félagi upp að fyrsta stórmarkaðnum sem á vegi hans var og gerði okkur skiljanlegt að þeir væru fleiri og ef við værum ekki ánægð með úrvalið þarna færum við bara á annan. Sagði ég honum að hafa engar áhyggjur við myndum bjarga okkur og ná okkur í leigubíl um borð. Hann hélt nú ekki. “Ég bíð hér á stæðinu og gefið ykkur allan þann tíma sem þið þurfið”. Fórum við nú inn og gengum frá að versla það sem þurfti og var svo ekið aftur um borð. Þegar við vorum u.þ.b. hálfnuð var ég eitthvað að segja við frú Lilju og segir þá velgjörðarmaður okkar skyndilega “taler de måske Dansk”? Ég hélt nú það og þar með breyttist allt og við gátum farið að tala almennilega saman. Kom þá í ljós að hann var kvæntur Danskri konu og að þau eyða mörgum fríum hjá foreldrum hennar í Danmörku. Á leiðinni sýndi hann okkur búgarð Hafnarstjórans sem rak mikinn gæsa- og andabúgarð og kom þar skýringin á hvers vegna hann var með svona stutta viðveru í höfninni. Þegar um borð var komið komum við frú Lilja okkur saman um að ég myndi fara með lítinn Íslenskan fána um borð til þeirra og afhenda sem þakklætisvott fyrir greiðann, en við höfum um borð smá bunka af þeim til að gefa fólki sem á einn eða annan hátt greiðir götu okkar sérstaklega og voru þau himinlifandi með gjöfina. Ef þið sjáið semsagt snekkjur á ferðum ykkar, með Íslenskan fána í glugga eða innréttingu þá má búast við að það fólk hafi greitt götu áhafnarinnar á Lilju Ben.

 

Við lögðum af stað daginn eftir kl. 0940 og stefndum á fyrstu slússuna af fjórum, með hæfilegum skammti af kvíða. Eftir 8.9 km. komu við að kanalmótum Dortmund-Ems-Kanal og beygðum inn í hann til vesturs og um leið birtist fyrsta “hryllingsbúðin”. Eftir að hafa kallað hana upp var mér sagt að bíða eftir merki sem gæti orðið eftir 15 til 30 mínútur svo við lögðumst að biðlegukannti og gekk það eins og í sögu. Hjón á öðrum bát, Hollenskum” voru komin í bið á undan okkur og kom skipstjóri hans á bakkann og tók við landfestum hjá okkur. Skömmu síðar kom annar Hollendingur og lagðist fyrir framan okkur. Bæði við, og Hollendingurinn sem fyrir var, vorum með hefðbundna bindingu að framan og aftan en nú tók ég eftir því að þessi nýkomni batt bara með einum spotta, þvert af miðjum bátnum og það vel strektum. Þegar landi hans af fyrri bátnum kom og bauð fram aðstoð við að binda betur afþakkaði hinn nýkomni og slappað svo af við blaðalestur meðan hann beið. Um leið rann upp fyrir mér ljós, hér var komið “trixið” fyrir fámenna áhöfn eins og okkur, þegar sami maður getur ekki verið á tveim til þrem stöðum samtímis. Það er að einbeita sér aðeins að því að koma einum enda upp á festingu við miðjan bát og strekkja vel, þá helst allt stöðugt og auðveldara er að færa endann upp eða niður eftir því á hvorri leið maður er. Einnig fundum við að þetta má allt undirbúa vel við brottför úr höfn og var það nú alltaf gert og spottar settir fast á miðnál hvoru megin, og gerðir upp þannig að þeir færu ekki í skrúfur færu þeir fyrir borð. Þróaðist þessi aðferð upp í að vera notuð einnig við komur í höfn til mikils léttis fyrir frú Lilju. Nú var þessari aðferð beitt þegar merkið kom um að fara inn í slússuna og allt gekk ljómandi vel. Þennan dag sigldum við í gegnum fjórar slússur án nokkurra vandræða en í þeirri fyrstu sem er í Dattlen fórum við niður um 6.5 m., eftir 5 km. var svo komið að slússu í Ahsen og þar fórum við 8.5 m. niður, þá kom 6 km. sigling til Flaesheim þar sem við lækkuðum um 4 m. og að lokum eftir 18 km. siglingu til viðbótar lækkuðum við um 9 m. í slússunni í Dorsten en þá lögðumst við í yachthöfninni þar kl. 1545 eftir hraðferð í gegnum 4 slússur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gauji Pet

Höfundur

Guðjón Petersen
Guðjón Petersen
Fyrrverandi háseti á Gullfossi, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, framkvæmdasjóri Almannavarna ríkisins, bæjarstjóri í Snæfellsbæ og framkvæmdastjóri Félags Íslenskra Skipstjórnarmanna. Núna bara ævintýramaður á eftirlaunum ásamt frú LILJU BEN með áhuga á svo til öllu. 
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...006_1240384
  • ...ngu_1240383
  • ...gullfoss
  • ...hulli
  • Skipstjóraborðið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband