Gunna Stöng fer í spíkat með Skipper Skræk.

Slússa full
Við ákváðum að liggja í Fuestrup yfir helgina 5. og 6. ágúst og létum fara vel um okkur á þessum yndislega stað. Fórum því ekki þaðan fyrr en mánudaginn 7. ágúst, sem var 100 ára ártíð föður míns heitins. Eftir um hálftíma siglingu komum við að olíustöð og tókum eldsneyti og heldum síðan áfram í átt að fyrstu slússunni í þessum áfanga, við borgina Münster, en í henni áttum við að hækka okkur um rúmlega 6 m., úr 50.30 m. í 56.50 m. yfir sjó. Þótt okkur frú Lilju Ben þyki slússurnar erfiðar viðureignar á svona siglingu þá vorum við salla róleg enda renndi okkur ekki í grun hvaða darraðardans við áttum í vændum í þessari slússu. Á leiðinni frá Recke til Fuestrup höfðum við yfirgefið Mitteland-Kanal og vorum nú komin í Dortmund-Ems-Kanal, en alltaf í sama vatnshæðarplani. Kl. 1145 komum við svo að slússunni og kallaði ég hana upp á VHF rásinni til að fá heimild og fékk það svar að bíða eftir að “main passage” opnaði (en slússurnar eru tvær, main og secondary) og koma þá inn á eftir þrem stórum legtum sem einnig biðu. Þessi slússa var í stærri kantinum af þeim sem eru í kanölunum eða 223. m. löng, 12 m. breið, 2.8 m. á dýpt í lægstu stöðu en 4.6 m. voru undir lokubúnaðinn þegar siglt var út í hærri stöðunni. Var auðséð af umferðinni að í hana yrði troðið legtum og bátum, en margir skemmtibátar voru á ferðinni auk okkar. Þrem korterum síðar, eða um 1230 opnaði svo slússan og legturnar þokuðu sér inn og fóru tvær innst og lögðust hvor sínu megin en sú þriðja lagðist aftan við þá sem lá stjb. megin. Fengum við nú fyrirmæli um að koma næst og fara fram með legtunni sem lá stjb. megin og leggjast aftan við legtuna sem komin var innst bb. megin. Komu svo aðrir skemmtibátar á eftir og fylltu upp fyrir aftan okkur. Nú var fyrirkomulagið hjá okkur þannig að ég var á stjórntækjunum en hlutverk bátsmannsins, frú Lilju, var að vera á afturdekkinu, þar sem athafnasvæði var best og húkka lykkju af landfesti um polla, sem eru steyptir inn í slússuveggina, þegar ég gæfi merki. Þegar hún væri búin að setja fast myndi ég kúpla skrúfunum frá og koma út til að fara fram með bátnum og setja upp spotta á annan polla að framan.  Þessi vinnubrögð helgast af því að mér takist að renna vel og beint upp með kanti slússunnar og fá bátinn til að liggja með honum meðan ég fari út og fram með, auk þess að stilla hann þannig af að ná megi í polla þar einnig til að húkka á. En nú fór allt í rugl. Um leið og við komum inn í slússuna og ég renndi að bb. kanti hennar fann ég að ég hafði mjög lítið vald á bátnum vegna straumkasts sem þeytti okkur til og frá. Kom í ljós að legturnar voru með skrúfurnar á snúningi, hægum þó, þótt þær væru búnar að binda og skapaði það þessa ólgu í slússunni. Þegar ég taldi mig vera búinn að stilla bátinn af við pollann sem frú Lilja átti að setja fast á kúplaði ég frá og ætlaði út til að festa að framan en um leið snerist báturinn með stefnið frá þannig að ég hentist aftur að stjórntækjunum til að rétta hann af. Með endann lausfestann að aftan virkaði hann sem springur í afturátaki þanig að stefnið fór enn meira frá, en virkaði sem afturendi í áframtaki þannig afturhornið myndi slást of harkalega í slússuvegginn ef því afli væri beitt sem nægði til að ná stefninu að, þannig að ég reyndi að beita bb. vél afturábak og stjb. vél áfram til að rétta hann af, en ekkert gekk vegna strumkastsins. (Sjómenn skilja þessa setningu). Þegar frú Lilju urðu ljós vandræðin tók hún það til ráðs að klifra fram með bátnum og ná taki á slímugum polla um leið og báturinn í einni sveiflunni kom að slússuveggnum, en hann byrjaði aftur að sveiflast frá svo hún hékk eins og “té” að mestu í lausu lofti milli báts og polla, enda of þrjósk til að sleppa fyrr en í fulla hnefana. Sem betur fór sleppti hún pollanum en ekki bátnum áður en slys hlaust af, og sagði síðar að hún hefði verið eins og “Gunna Stöng” til sjós með Skipper Skræk” og verið komin í spíkat áður en hún sleppti takinu. Á meðan á öllu þessu stóð var byrjað að fylla slússuna með öllu því straumkasti sem því fylgir, og við komin á fulla ferð upp svo ég ákvað að gefa skít í allar festingar og bað frú Lilju að losa, ég myndi halda bátnum á þeim bletti sem ég hafði til athafna með vélarafli, festingin truflaði þetta aðeins. Í öllum látunum lenti ég með þó nokkru höggi aftan á legtunni fyrir framan án þess þó að nokkrar skemmdir yrðu. En það er af frú Lilju að segja að hún kom inn úrvinda af átökum og streitu eftir hamaganginn á dekkinu og sagði aðeins eitt “ég er búin”. Var ég viss um að með því myndi frú bátsmaður í besta falli segja upp og hætta eða í versta tilfelli strjúka úr skipsrúmi. Þegar loks opnaðist fyrir slússuna og við sigldum út rúmlega 6 m. ofar vorum við bæði svo dösuð að við máttum vart mæla. Fjórar slússur voru enn framundan áður en við kæmum niður á stórfljótið Rín en við ræddum það ekki til aukins ergelsis, sem betur fer, því þegar við biðum við næstu slússu lærðum við “trix” sem gerði alla slússuleikfimi að barnaleik svo að eftir það sögðum við eins og músin þegar hún var orðin full “komiði bara með allar slússur”, en músin sagði víst “komiði nú með helvítis köttinn”. Trixið kemur í næsta pistli.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gauji Pet

Höfundur

Guðjón Petersen
Guðjón Petersen
Fyrrverandi háseti á Gullfossi, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, framkvæmdasjóri Almannavarna ríkisins, bæjarstjóri í Snæfellsbæ og framkvæmdastjóri Félags Íslenskra Skipstjórnarmanna. Núna bara ævintýramaður á eftirlaunum ásamt frú LILJU BEN með áhuga á svo til öllu. 
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...006_1240384
  • ...ngu_1240383
  • ...gullfoss
  • ...hulli
  • Skipstjóraborðið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband