Hannover til Mindener

Þar sem bátar tilheyra heimili

Myndin "Þar sem bátar eru hluti af heimilshaldinu"

Við vöknuðum 1. ágúst vafin í kongulóarvefi og varð að byrja daginn á að sópa allt hátt og lágt til að losna við vefi, búseta þeirra og bráð. Var aðgangsharka kóngulóanna svo mikil að þær voru ekki aðeins utandekks heldur inn um allan bát hangandi niður úr loftum og tækjum, hvar sem vef á festi. Áttum við eftir að eiga í nokkrum orustum við þær í túrnum, en furðulegt nokk mismikið eftir stöðum. Eftir þrifin hófst frú Lilja handa við að koma upp skordýraneti fyrir opnanlega glugga og dyr til að halda kvikindunum sem mest úti. Unnum við síðan allan daginn við að undirbúa brottför en við áætluðum að komast til Rotterdam í Hollandi fyrir 11. ágúst til að taka á móti syni okkar Lárusi Pet, konu hans Sigrúnu Ólafsd. og syninum Ólafi Ágúst. Eldri sonur þeirra Guðjón Pet. jr. kom einnig til Rotterdam í fótboltaferð með KR og var stefnt á að hitta hann og horfa á leiki. Þriðjudaginn 2. ágúst ræstum við vélar kl. 0910, leystum landfestar og yfirgáfum Hannover Motoryacht Club sem hafði varveitt bátinn um þriggja mánaða skeið. Var gefið hressilegt kveðjuflaut að skilnaði. Var nú stefnan tekin vestur eftir Mitelland Kanal en fyrsti áfanginn var á þessum degi til Mindener sem er í 74 km. fjarlægð. Ekkert bar til tíðinda og gengu vélar og öll tæki eins og til var ætlast. Hámarkshraði í kanalnum var ekki nema 10 km/klst. og síðar 12 km/klst. Við vorum komin í hringiðu legtu- og skemmtibátaumferðar sem augsýnilega var mun meiri en í vor þegar við sigldum þessar slóðir. Eftir skamma siglingu var komið að olíustöð og lögðumst við uppað og fylltum af eldsneyti og var síðan haldið áfram. Þegar siglt er um svona skurði, eða kanala, verða lýsingar af því e.t.v. tilbreytingalitlar þegar ekkert sérstakt gerist. En til gamans má geta þess að t.d. á þessari 78 km. vegalengd sigldum við í vatnsborði sem er 50.4 m. yfir sjávarmáli, eins og fram hefur komið í fyrri lýsingum af “slússum” (skipastiga). Einnig  má geta þess að á þessari leið fórum við undir 77 brýr, framhjá 43 höfnum og leguplássum og fjórum kanalmótum þar sem þeir skerast. Það er alltaf mikið að sjá en allar þessar hafnir eru við þorp og minni bæi sem líða framhjá. Ekki hef ég tölu á öllum þeim bátum sem við vorum samferða eða mættum en allavega höfðum við nóg að gera við að veifa og heilsa sem er fastur liður milli skemmtibáta sem mætast eða hittast við frammúrtöku. Kl. 1600 komum við svo til Mindener yachthafen og lögðumst að bryggju eftir tæplega 7 klst. siglingu. Við kóngulóafárið bættist nú við moskitóflugur (mýbit) sem gera þurfti ráðstafanir gegn og voru nú verslaðar inn eiturvörur til herferðar gegn öllum hugsanlegum óværum sem sóttu að, en skordýranet frú Lilju komu sér vel og héldu þeim að mestu utandekks.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gauji Pet

Höfundur

Guðjón Petersen
Guðjón Petersen
Fyrrverandi háseti á Gullfossi, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, framkvæmdasjóri Almannavarna ríkisins, bæjarstjóri í Snæfellsbæ og framkvæmdastjóri Félags Íslenskra Skipstjórnarmanna. Núna bara ævintýramaður á eftirlaunum ásamt frú LILJU BEN með áhuga á svo til öllu. 
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...006_1240384
  • ...ngu_1240383
  • ...gullfoss
  • ...hulli
  • Skipstjóraborðið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband