20.7.2006 | 16:57
Hannover, heim og aftur í siglingu
Nú er komið að 36. og síðasta pistlinum að sinni um ferð okkar um sjó og sund með Lilju Ben því nú var komið að heimferð eftir þessa frumraun siglingalífstíls. Eins og áður sagði dvöldum við í Hannover frá 30. apríl til 9. maí sem var heimferðardagur. Þótt mestur tími færi í þrif og aðra dyttingu við bátinn þá var einnig farið í skoðunarferðir um borgina og nágrenni hennar. Höfnin sem við lögðum bátnum í, Anderten, er í einum af útbæjum Hannover og gátum við sótt allan viðurgjörning og þjónustu þar þannig að borgarferðirnar gátum við farið lausbeislað og notuðum til þess hið frábæra lestarkerfi Þýskalands.
Fram til 2005 var Hannover höfuðborg Neðra Saxlands innan Þýska Sambandlýðveldisins. Borgina byggja um 516.000 íbúar og spannar hún um 204 km². Saga borgarinnar nær aftur til 13. aldar og er breska konungsættin afsprengi hertogans af Calenberg sem tók sér bólfestu í Hannover árið 1636. Til frekari fróðleiks er bennt á slóðirnar http://wikipedia.org/wiki/hannover og www.hannover.de.
Við söknuðum bæði Lilju Ben þar sem hún lá yfirgefin í Yachthöfninni í Hannover þótt við vissum að hún væri í góðum höndum hafnarstjórans Herbert Wagner. Þessar sjö vikur sem við höfðum eytt um borð buðu uppá skemmtilega og spennandi daga þar sem alltaf var eithvað nýtt að fást við og ævintýrin næg. Þótt stundum blési á móti, bilanir og hrekkir væru í bátnum fyrstu dagana gleymdist það strax á góðu skriði þegar allt lék í lyndi, enda vandræðagangurinn undantekning frá reglunni.
Annar áfangi ferðarinnar hefst 30. júlí en þá fljúgum við aftur út til móts við Lilju Ben og er sex vikna sigling framundan eða til 13. september. Börn, tengdabörn og barnabörn ráðgera að taka þátt í siglingu með okkur um tíma og skipta á mili sín ákveðnum áföngum en meiningin er að ná til Oostende í Belgíu í þessum áfanga, eða jafnvel eitthvað suður með Frakklandi. Engum liggur á og lengd áfanga ræðst af áhuga fyrir hverjum stað sem farið er um. Ferðaáætlunin er nánar þannig að eftir könulum Þýskalands með viðkomum í yachthöfnunum í Minden, Bad Essen, Fuestrup, Olfen, Friedrichsfield. Síðan niður Rínarfljót í Spotrhafen Emmerich. Þaðan eftir mismunandi þverám Rínar inn í Holland og í Yachthöfnina Goringchem. Þaðan verður haldið til Sophiahafen og síðasti leggurinn verður til Oostende þar sem spáð verður í framhaldið. Á leiðinni er meiningin að taka allskonar útúrdúra eftir könulum og skoða sig um eftir því sem áhugi vaknar.
Eftir því sem ferðinni vindur fram og netsamband leyfir munum við leyfa ykkur að fylgjast með.
Um bloggið
Gauji Pet
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.