14.7.2006 | 14:24
Sehnde og Hannoverscher Motorboot Club
Enn voru landfestar leystar kl. 0930 og haldið af stað til Hannover. Var hér um stutta siglingu að ræða þar sem Sehnde er skammt frá Hannover, en einn galli þó við þann spotta að fara þurfti í gegnum sjöttu slússuna. Vatnsborð Mittellandkanals sem við vorum nú í er í 65 m. hæð yfir sjó og áttum við að lækka um 10 m. í næstu slússu. Þegar við nálguðumst Anderten slússuna voru eins og venjulega tvær legtur sem fengu aðgang fyrst og biðum við róleg meðan þær komu sér fyrir. Þegar ég taldi að þær væru búnar og stöðva skrúfurnar var siglt inn í slússuna og lagst að hægri vegg hennar en þá kom í ljós að mikið straumkast var enn í slússunni og legturnar með skrúfur í gangi. Settum við því aðeins einn spotta upp að aftanverðu og ákváðum að hafa vélarnar í gangi til að halda bátnum við slússuvegginn. Nú varð hins vegar fjandinn laus. Eftir að búið var að loka að baki okkur byrjaði vatnsborðið í slússunni að lækka óðfluga en þá sáum við okkur til mikillar skelfingar að pollinn sem við höfðum sett fast á fylgdi ekki niður, eins og verið hafði í öllum slússum fram að þessu, og strekktist því syndilega á bandinu með þeim afleiðingum að afturhornið á bátnum var farið að hanga í honum og báturinn að lyftast þar upp. Framundan var stórskemmd á bátnum ef ekkert yrði aðhafst en fyrir hið mesta harðfylgi tókst frú Lilju Ben að losa spottann af nálinni um borð þannig að báturinn datt niður í rétta legu og slaknaði þá á allri spennu. Spottinn var þó enn fastur á pollanum í slússuveggnum sem alltaf fór hærra og hærra og greip ég til þess ráðs að klifra í snarhasti upp á fly bridgið og náði þar með naumyndum það hátt að ég gat smeygt lykkjunni uppaf pollanum. Ákváðum við nú að reyna ekki að setja fast í slússunni og fór ég að stjórntækjunum til að halda bátnum á öruggum stað innan slússunna, með vélarafli og gekk það bærilega þrátt fyrir skrúfu- og straumkast frá legtunum. Vorum við þeirri stund fegnust þegar slússan opnaðist að framan og legturnar, og síðan við, gátum siglt út úr henni. Eftir skamma siglingu komum við svo að stuttum en þröngun hliðarkanal og var höfnin sem við stefndum á um 2 km. upp með honum. Þetta var sólríkur og heitur sunnudagur og þegar við komum að höfninni sáum við að eithvað mikið var um að vera, allir bátarnir fánum skrýddir og mikil stemming fyrir framan klúbbhús hafnarinnar, fjölmenni og fljótandi bjór um allar trissur. Ekki kom ég strax auga á laust pláss þegar við renndum inn með bryggjunum og ætlaði að fara að snúa frá þegar menn tóku sig út úr þvögunni og benntu okkur á að renna inn í eina lausa plássið, sem ég hafði ekki komið auga á og var beint undan klúbbhúsinu. Tóku þeir við landfestum og hjálpuðu okkur að binda bátinn og tengjast landrafmagninu. Vorum við boðin hjartanlega velkomin á þessa hátíð þeirra sem var í tilefni að því að vor seasonin var að hefjast hjá siglingaklúbbnum. Eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir kom hafnarstjórinn um borð og rétti okkur sitthvort hvítvínsglasið í boði hafnarinna og bað okkur blessuð að taka þátt í gleðskapnum, sem við þáðum með þökkum. Var nú gengið frá samningum um geymslu á Lilju Ben til 31. júlí n.k. en þá myndum við koma aftur til að halda ferð okkar áfram. Í Hannover dvöldumst við í 9 daga áður en haldið var heimleiðs og notuðum tímann til að hreinsa bátinn frá mastri og niður úr, og bóna allt utanþilja, auk þess að njóta þessara sumardaga í Hannoverborg.
Um bloggið
Gauji Pet
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.