11.7.2006 | 11:36
Wittingen til Abbelsbuttel og áfram til Braunschweg.
Við lögðum frá bryggju í Wittingen kl. 0940, fimmtudaginn 27. apríl og héldum eftir kanalnum áleiðis til Abbesbuttel. Siglingin þangað var tíðindalaus að undanskyldu því að þegar við vorum u.þ.b. hálfnuð sveigðum við úr Elbu Sitekanal inn í Mittelandkanal en þar breytti um svip því fyrsta spottann var kanallinn skógi vaxinn niður að bökkum þannig að útsýnið var einungis tré eftir tré. Þegar Abbesbuttel átti að vera að nálgast var landslagið óbreytt, hvergi byggð að sjá einungis skóg. Var nú farið að gæta efasemda hjá undirritðum um að þarna væri um einhverja yachthöfn að ræða en þá opnaðist skyndilega á vinstri hönd lítið vik inn í kanalinn og þar var þá höfnin neðan undir örfáum húsum sem flest voru ný eða í byggingu. Vinnuvélar voru að andskotast á ströndinni í víkinni og stórir vörubílar á ferðinni fram og aftur með tilheyrandi skrölti og hávaða. Augsýnilega var verið að byggja þarna nýja yachthöfn en öðru megin í víkinni voru nokkrar bryggjur með skemmtibátum og voru þær mjög hrörlegar að sjá. Engu að síður var ákveðið að renna að einni sem var laus og fórum við með ýtrustu hægð að henni. Þegar báturinn kenndi bryggjunnar kom í ljós að hún var svo fúin og ræfilsleg að ég varð hræddur um að hún gæfi undan. Komum við nú landfestum fyrir, þegar ljóst var að bryggjan þoldi okkur, og slökktum á vélunum. Þegar vélarnar voru þagnaðar magnaðist hávaðinn frá vinnuvélunum og vörubílunum sem sturtuðu stórgrýti í hafnargerðina þannig að við fundum að þarna væri ómögulegt að liggja, auk þess sem umhverfið var vægast sagt óaðlaðandi og eyðilegt. Var því ákveðið að starta aftur, leysa landfestar og halda áfram til Braunschveg sem var eins gott því ella hefðum við misst af þeim fallega bæ. Eftir um háfs-annars tíma siglingu kom yachthöfnin á Braunschweg í ljós á hægri hönd með þrönga innsiglingu milli innrammaðra stálþila. Þetta er lítil höfn en vel löguð og þegar við komum inn virtist allt fullt af bátum, hvergi smuga. Stoppuðum við á þröngu snúningssvæði skammt innan við hafnarkjaftinn til að svipast um. Var ég búinn að taka eftir skilti við hafnarkjaftinn sem gaf til kynna að minnsta dýpi í höfninni væri 2 m. svo ég þorði ekki annað en að lyfta skrúfunum upp fyrir kjöldýpt bátsins. Þar sem við svipuðumst þarna um rak ég augun í skiltið gestabryggja innst í höfninni og um leið sá ég að þar var að sjá pláss á milli tveggja báta og var nú þokað sér þangað, lagst og bundið um kl. 1500.
Braunschweg er 240.000 manna borg í Suð-austur horni Neðra Saxlands og er mjög falleg og blönduð af nútíma-og gamalli byggingarlist. Nutum við þess að eyða því sem eftir var dags og fram á kvöld við að skoða okkur um, setjast inn á knæpur, eins og þjóðverjar kalla bari, og fá okkur bjór með útsýni yfir reikandi lífsstrauminn um stræti. Vegna fegurðar bæjarins og góðrar aðstöðu í höfninni ákváðum við að liggja þarna í tvær nætur og nota tímann til ýmissa verka um borð og frekari skoðunar. Nú var sumarið loks komið og hitinn farinn að vera milli 15 og 20 stig á daginn og var það kærkomin tilbreyting frá kuldanum sem við vorum búin að vera í frá því að við komum út í mars. Sumarið var að koma að sunnan og við siglum á móti því til suðurs svo það var notalegt að snuddast úti í góða veðrinu. Notuðum við föstudaginn 28. apríl til að taka fly bridgið í gegn, þrífa þar sófa og sessur, opna stjórntæki og yfirlíta, og koma björgunarbátnum þar fyrir í sínu framtíðarplássi, en hann höfðum við haft á afturdekkinu til bráðabirgða, þar sem hann var vel tiltækur. Eftir annasaman dag, olíutöku og flakk í bæinn tókum við rólegt kvöld um borð með veislumat og rauðvíni. Mikið líf var allt um kring í höfninni fólk að dytta að bátum og spjalla saman. Ákváðum við að fara daginn eftir til Sehude sem var næst síðasti áfanginn á leið okkar til Hannover þar sem bátnum var lagt fyrir heimkomuna í maí.
Morguninn eftir leystum við landfestar kl. 0930 eftir að ég var búinn að fara upp á hafnargarðinn til að líta til beggja handa í kanalnum og fullvissa mig um að engin legta væri í augsýni. Ástæðan er að hafnargarðarnir ásamt hafnarhausunum eru svo háir að ómögulegt er að sjá kanalinn fyrr en komið er út í hann og svigrúm þá til að forðast árekstur, ef annað skip er að koma eftir honum, lítið sem ekkert. Kallar sem voru þarna komnir til að vinna í bátum sínum slepptu fyrir okkur landfestunum og fór svo upp á garðinn til að vakta kanalinn meðan við sigldum út. Fengu þeir þrjú kveðjuflaut að launum þegar við vorum komin út og á stefnu lengra til Suðurs.
Kl 1240 lögðumst við svo að bryggju í Sehude, litlum en notalegum bæ rétt Norðan við Hannover. Urðum við að liggja kanalmegin við bryggjurnar í þessari litlu höfn þar sem dýpi var ekki nóg fyrir okkur að fara innfyrir, en það var hin besta lega. Var nú sem áður rölt í bæinn en hann var frekar deyfðarlegur en einhver hátíð var í gangi með lúðrablæstri og markaðstjaldi sem við settum okkur ekkert freka inní. Verður í næsta pistli rætt um lokalegginn til Hannover og skelfingu í næstu slússu.
Um bloggið
Gauji Pet
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.