Þvottur, lyf og vændiskonur á pension.

Hamborgarhöfn

Laugardaginn 22. apríl fórum við snemma upp í Wedel með óhreinan þvott í þvottamiðstöðina. Tókum við leigubíl því við nenntum ekki að bera þessi ósköp auk þess sem við vorum ekki alveg klár á því hvar þvottahúsið er. Þegar búið var að hlaða vélarnar fórum við að eyða tímanum á svæðinu og rak ég þá augun í apótek rétt hjá. Þar sem ég var búinn með lyf, sem er lyfseðilsskylt, og er mér til bóta að geta tekið, ákvað ég að fara þar inn og kanna hvort ég fengi það afgreitt út á íslenska lyfseðilinn, sem ég var með á mér fyrir tilviljun. Rétti ég konunni í afgreiðslunni lyfseðilinn og skýrði út fyrir henni fjölnotaseðilinn og að ég ætti eftir eina afgreiðslu á 30 töflum af lyfinu. Ekki var vandamál að fá hana til að skilja lyfseðilinn og tók hún hann gildann en sagði að samkvæmt þýskum reglum mætti ekki afgreiða nema mest 20 töflur í einu. Voru nú töflurnar afgreiddar og skrifaði hún með hinni alkunnu nákvæmni Þjóðverja þessa afgreiðslu sína í reitinn fyrir síðustu afgreiðslu á seðlinum, 20 töflur, og rétti mér svo.

 

Eftir þvottinn var farið um borð aftur og gengið frá honum. Var svo haldið sömu leiðina og daginn áður til Hamborgar. Kalsaveður var með rigningu og því ekkert spennandi að vera mikið utandyra svo að þegar við komum út úr aðaljárnbrautarstöðinni í Hamborg fórum við beint að einni “sight seeing” rútunni sem þar stóð og spurðumst fyrir um ferðina og hvort ekki væru gefnar upplýsingar á ensku. Jú jú, hér væri enskumælandi leiðsögumaður var sagt og að best væri fyrir okkur að fara á efri hæðina, bíllinn var nefnilega tveggja hæða, með opna efri hæð, sem nú var breytt yfir vegna rigningarinnar, en á efri hæðinni væri best að heyra í hátölurum rútunnar. Það fóru að renna á okkur tvær grímur um leið og við gengum inn í bílinn, ef kalla má hann það. Í raun var þetta bílhræ og með ólíkindum að það fengi að fara um götur. Bekkirnir voru rifnir og óhreinir, gólfið drulluskítugt og sundurryðgað á köflum, en pappaspjöld voru lögð yfir verstu götin svo ekki sæist gegnum gólfið. Niður úr loftunum hengu gamlir vírspottar og leiðslur fyrir fyrrverandi og núverandi hátalarakerfi sem virtist allt í skralli. Illa sá út um glugga fyrir móðu og skít. Létum við okkur hafa það að klifra á efri hæðina og setjast þar. Skömmu síðar hófst ferðin um borgina, jafn ömurleg og bíllinn gaf fyrirheit um. Byrjað var á að aka í átt að Alstervatni og vestur yfir brúna sem liggur yfir það og þaðan yfir á vesturbakkann. Leiðsögumaðurinn lét dæluna ganga, á þýsku, og skaut fyrst í stað, inn í lýsinguna, örstuttum setningum á ensku en hætti því svo alveg. Eftir að við vorum búin að fara í gegnum viðskiptahverfið sem er Suð-Vestan við Alstervatn og framhjá ráðhúsi Hamborgar var komið að Sankti Michaelskirkju, sem er höfuðkirkja Hamborgar, mikil og glæsileg í Gotneskum stíl, byggð 1611. Voru nú allir reknir úr bílhræinu og boðið að fara inn í kirkjuna til skoðunar en þegar í anddyrið var komið var kirkjan lokuð vegna kóræfingar. Var farið að þykkna í fólki og stóðst Hr. Örn ekki mátið og fór til leiðsögumannsins og hundskammaði hana fyrir bílhræið, svikna leiðsögu, sem aðeins færi fram á þýsku, og lokaða kirkjuna. Endaði það með því að hún bauð okkur að ljúka túrnum með öðrum bíl sem við myndum hitta niður við “hafnarterminalinn”, en í honum væri leiðsaga á ensku af segulbandi. Næst var keyrt í gegnum Reeperbahnen og rifjuðust upp minningar hjá okkur Erni frá því að við sigldum þangað unglingar fyrir rúmum 40 árum, en Reeperbahnen er jú frægur fyrir sitt ljúfa líf og businesskonur sem stunda hörkuviðskipti með líkama sinn og sál. Keyrt var framhjá Herbertstrazen, hinni lokuðu götu freistinga holdsins og áfram niður að hafnarterminalnum þar sem við skiptum um bíl. Nýi bíllinn var skömminni skárri þótt lélegur væri og kom nú leiðsögumaðurinn með heyrnartól sem hann setti á okkur og svo var haldið af stað. Byrjaði nú ljúf rödd að segja okkur frá á ensku eftir því sem við nálguðust hinar frægu kryddskemmur við Hamborgarhöfn, en þá fór allt í steik. Þegar leiðsögumaðurinn hóf að lýsa leiðinni á þýsku var það með þvílíkum hávaða og djöfulskap að enskumælandi leiðsagan gufaði upp í frumeindir sínar. Féllust okkur hendur og gáfumst upp á að reyna að njóta ferðarinnar. Vorum við þeirri stund fegnust þegar við losnuðum úr þessum ósköpum.

 

Það voru vonsviknir ferðamenn sem fóru heim með lestinni eftir lítilsháttar ráp og bjórdrykkju í borginni eftir misheppnað “sight seeing”. En rúsinan í pylsuenda dagsins kom frá frú Lilju á leiðinni heim. Á stoppistöð lestarinnar undir Reeperbahnen komu inn tvær mjög svo virðulegar eldri konur og settust í sætið gengt okkur. Eftir skamma stund sá ég að frú Lilja leit á konurnar og mig til skiptist og sagði svo allt í einu. “Þekkir þú þessar konur Guðjón”? Ég leit á hana furðu lostin og sagði “nei hví ætti ég að þekkja þær”? “Jú” sagði þá frú Lilja “ stúlkurnar sem yljuðu ykkur á Reeperbahnen þegar þið siglduð þangað strákar væru akkúrat á þessum aldri núna þannig að það gat svo sem verið að” og kláraði ekki setninguna. Þegar ég náði því sem hún var að segja gat ég ekki annað en hlegið en þó flaug mér í hug, skyldu vændiskonur fara á pension og hvernig skyldi þá eftirlaunum þeirra vera háttað?

Annars er Hamborg á allan hátt hin merkilegasta borg. Hún er næst stærsta borg Þýskalands með 1.7 milljón íbúa. Þótt íbúafjöldinn sé ekki meiri er hún 2 og hálfum sinnum umfangsmeiri að flatarmáli en Paris og London og er það vegna mjög hás lifistandars í borginni en hver íbúi býr að meðaltali á 30 fermetrum fyrir sig. 14% af borginni eru skrúð- eða skemmtigarðar. Í borginni eru 2.302 brýr sem er meira en allar brýr Amsterdam og Feneyja til samans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gauji Pet

Höfundur

Guðjón Petersen
Guðjón Petersen
Fyrrverandi háseti á Gullfossi, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, framkvæmdasjóri Almannavarna ríkisins, bæjarstjóri í Snæfellsbæ og framkvæmdastjóri Félags Íslenskra Skipstjórnarmanna. Núna bara ævintýramaður á eftirlaunum ásamt frú LILJU BEN með áhuga á svo til öllu. 
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...006_1240384
  • ...ngu_1240383
  • ...gullfoss
  • ...hulli
  • Skipstjóraborðið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband